Ég er ekki frá því...

að karla raksápa sé betri en konu. Var í sturtu sem er ekki ekki frásögu færandi, og var að rembast við að raka á mér legina ... sem er frásögu færandi . Nema hvað froðukvoðan mín kláraðist. Nú voru góð ráð dýr. Ekki gat ég hugsað mér að hafa annann leggin hálf loðinn en hinn kafloðinn, svo ég skrönglaðist út út sturtunni til að gá hvort Fannar ætti ekki froðukvoðu. Jú mikið rétt meira að segja 2 brúsa (eru þetta ekki annars brúsar) Svo að ég hnupplaði öðrum þeirra. Sorry ástin mín, en þú bara notar þetta aldrei, og mín var búin Joyful Skjögraði aftur í sturtuna og kláraði raksturinn. Má eiginlega segja að ég ilmi eins og nýrakaður karlmanms kjálki! En ég segi það satt, ég er bara ekki frá því að stolna kvoðan sé betri en dömu fladí flah.

Annars er ég búin að vera hálf öfugsnúin í dag. Lítill frændi minn mjög veikur. Reyndar svo veikur að það var tvísýnt um hann síðastliðna nótt. Litla skinnið. Hugur minn er allur hjá honum. Vona það besta.

Líf&fjör


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ææ, leitt að heyra með hann frænda þinn, vona að allt fari vel.

alva (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Árný Sesselja

Úbbs... puttinn bendir víst á Lenu en knúskossarnir eru frá mér

Árný Sesselja, 29.3.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Solla má alveg fá knús frá mér líka 

Rannveig Lena Gísladóttir, 30.3.2008 kl. 13:03

5 identicon

en annars ég fór í búðina eða apotekið til að kaupa raksápu og það var bara til karlasápa...og ég keypti hana bara og hún er bara skrambi góð sko..þetta er örugglega allt sama tóbakið, bara öðruvísi lykt.

alva (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband