Nei hæ!

Jólin eru búin að vera æði!!! Át, át,át og leti,leti,leti. Bjóst við að hafa þyngst meira en ég gerði, sem er baaara plús. Til allra þeirra sem glödu okkur með kortum og gjöfum Takk fyrir okkur.

Ég ætla ekki að strengja áramótaheit í þetta sinn. Gert það nokkrum sinnum en aldrei staðið við neit svo hver er tilgangurinn? Maður spyr sig.

2007 er búið að vera frábært ár. Ekki margt sem ég vildi breyta þar. Sem er bara gott. Hef voða lítið að segja, enginn bloggandi yfir mér núna.

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.                                 Líf&Fjör


.

Stattu þig stelpa!!!


mbl.is Kona kærir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumburðurinn

er 8 ára í dag. Svo í dag verður afmælisveisla 2. Hann er búin að halda uppá bekkjarafmæli. Komst að því í fyrra að þegar það er komið svona nálægt jólum er ekki sniðugt að halda barnaafmæli um helgi. Það mæta ekki margir þá. Enda svo margir sem skreppa í burtu um helgar. Stubburinn minn (ég er búin að fá leyfi til að kalla hann það áfram, bara ekki í kringum krakkana sko) er á leiðinni heim. Hann er búin að vera hjá pabba sínum í Keflavíkini síðan á föstudag. Vona að honum hafi líka gjöfin. Ég, Fannar,pabbi hans og Oddný gáfum honum saman þráðlausa stýripinna og minniskort/kubb hvað sem það nú heitir, fyrir playstation tölvuna.

Anna mín kom heim í gær, hún var líka í föður húsum um helgina. Fékk inniveru fyrir hana í leikskólanum því hún er búin að vera svo rosalega kvefuð um helgina og svona. Það var rosa fjör á minni þegar hún komst að því að hún mátti opnadaga á dagatalinu í gærkvöldi!! Og svo aftur 1 í morgunn.

Leikfélagsfundur í kvöld með Ingrid leikstjóra. Það verður gaman!!  Svo skúra, skrúbba og bóna gangana í vinnunni í kvöld og nótt.

Takk Árný mín fyrir jóla pimpið á síðunni Kissing

Lífið er yndislegt!!                                          Líf&Fjör


Jæjaaaa

Jú Halla mín það er kominn 5 des. Ég veit Smile Ég hef bara ekki verið upp á marga fiska síðustu daga. Kvefpest og rasgubbupest. Ekki góður kokteill, ég get vottað það. En minns er að sprækjast. Er í fríi í dag og ætla að nota daginn til að skríða betur saman. Vinnuhelgi framundan og svo á frumburðurinn afmæli næsta mánudag. Hann bað sérstaklega um að hafa ostapinna í afmælinu. Sem mér finnst ekki slæmt, hollt og gott. Hann og Gísli bekkjarbróðir hans ætla að halda upp á afmælin sín saman fyrir bekkinn, þeir eiga afmæli með 4 daga milli bili. Gerðu það líka í fyrra og það heppnaðist bara ágætlega. Heyrðist samt á mínum kalli að hann vildi svo halda upp á herlegheitin einn á næsta ári.

Krakkarnir fara í föðurhús um helgina svo verður frekar rólegt á heimilinu. Kannski ágæt því Fannar fer í 2 próf á mánudaginn, svo hann hefur ró og næði til að undirbúa sig fyrir þau. 

En, þar til næst verið góð við náungann ......                                 Líf&Fjör 

 P.s. Hvernig nær maður tyggjói úr fötum?


Það er ...

... svo ljómandi gott að vera komin í frí. 3 daga helgarfrí. Bara ljúft. Er að verða svolítið lúin eftir þessa vinnutörn, og er það farið að sjást á heimilinu. Hvort er betra hamingjusöm börn eða hreint heimili? Ég hef amk ekki mikið verið að þrífa þessa viku (ekki nennt því) en kúrt frekar með krökkunum yfir vídeói eða eitthvað annað, með þeim.

Ég kláraði sokkinn hennar Önnu á laugardaginn. Man ekki hvort ég var búin að segja frá því. Finn ekki snúruna til að hlaða myndunum af myndavélinni. Svo það kemur bara seinna mynd. En hann er rosa flottur.

Við Anna Guðbjörg gerðum heiðarlega tilraun til að setja seríu utan á húsið á þriðjudaginn, en tókum hana strax niður aftur. Hún var ekki alveg að passa.

Dagskrá helgarinnar er að setja upp fleiri seríur, baka smákökur, föndra með krökkunum, byrja á jólakortunum, passa að það sé friður í húsinu svo Fannar geti lært fyrir próf á mánudaginn, formleg opnun leikskólans á laugardaginn, Anna fer í afmæli á sunnudaginn og hver veit nema að ég þrífi pínu og stytti gardínur.


Skilaboð skolast til áhafnar

SKILABOÐ SKIPSTJÓRA TIL 1. STÝRIMANNS:

Snemma í fyrramálið, klukkan 9:00 verður almyrkvi á sólu. Þar sem þetta er ekki daglegur viðburður skal áhöfnin klæðast sínum bestu fötum, raða sér upp úti á þilfari og fylgjast með þegar sólin hverfur. Ég mun sjálfur útlista þennan merka atburð fyrir áhöfninni. Ef það rignir er hætta á að okkur auðnist ekki að sjá þegar sólin hverfur og fari svo skal áhöfnin koma saman í matsalnum.

SKILABOÐ 1. STÝRIMANNS TIL 2. STÝRIMANNS:

 Samkvæmt skipun skipstjórans verður snemma í fyrramálið, klukkan 9:00, almyrkvi á sólu. Ef það rignir munum við ekki sjá sólina hverfa á þilfarinu í okkar bestu fötum. Fari svo munum við fylgjast með þessu merka fyrirbæri í matsalnum. Þetta er ekki daglegur viðburður.

SKILABOÐ2. STÝRIMANNS TIL 3. STÝRIMANNS:

Samkvæmt skipun skipstjórans munum við fylgjast með, í okkar bestu fötum, þegar sólin hverfur í matsalnum klukkan 9:00 í fyrramálið. Skipstjórinn mun sjálfur útlista fyrir okkur hvort það fari að rigna. Þetta er ekki daglegur viðburður.

SKILABOÐ 3. STÝRIMANNS TIL BÁTSMANNS:

Ef það rignir í matsalnum snemma í fyrramálið, sem er ekki daglegur viðburður, mun skipstjórinn, í sínum bestu fötum, hverfa klukkan 9:00

SKILABOÐ BÁTSMANNS TIL ÁHAFNAR:

Snemma í fyrramálið, klukkan 9:00, mun skipstjórinn hverfa. Því miður er þetta ekki daglegur viðburður.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband